Home Viðburðir Inkscape 3 – Smáhlutir

Inkscape 3 – Smáhlutir

16. mars 2022
Kl. 19-22
4 kennslustundir (4x40mín)
6.000 krónur

Lærðu að búa til þrívíða hluti úr laserskornu efni, s.s.krossviði, mdf plötum eða plexiplasti með mynd eða texta.

Vinyl-, pappírs- og laserskerar bjóða upp á endalausa möguleika á að skera út límmiða, kort, smáhluti og hirslur úr ýmsu efni. Notaðir eru Silhouette og Cricut maker 3 skerar. 

Innifalið er efni og afnot af tölvum en þátttakendur geta komið með sínar eigin fartölvur ef vill. Hámarksfjöldi 6. 

Sýslið er með þrjú sjálfstæð námskeið í Inkscape sem eru hvert um sig eitt skipti. Það er hægt að velja að fara á eitt eða fleiri. Fyrsta námskeiðið krefst engrar forkunnáttu, en námskeið tvö og þrjú gera ráð fyrir að fólk hafi smá grunn í forritinu.

Kennarar: Ásta Þórisdóttir og Svanur Kristjánsson

Ásta er með listmenntun í grafík frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og meistaragráður í listkennslu og hönnun frá Listaháskóla Íslands. Ásta er með langa reynslu af kennslu barna og fullorðinna. 

Svanur er tækjamaður Sýslsins og hefur lokið FabAcademy sem er sérhæft nám fyrir leiðbeinendur í Fab Lab smiðjum. 

Þátttakendur fá staðfestingarskjal fyrir þátttöku og skráðar kennslustundir og geta sótt um tómstundastyrki til stéttarfélaga sinna. Námskeið hjá Sýslinu verkstöð eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.

Hægt er að koma og nýta sér tækjabúnað Sýslsins á opnum verkstæðum á mánudögum milli kl. 16 – 19.

Dagsetning

16 03 2022
Expired!

Tími

19:00 - 22:00

Verð

6.000 kr

Meiri upplýsingar

Skráning →

Staðsetning

Sýslið verkstöð
Hafnarbraut 2
Category
Skráning →