Home Viðburðir Teikning 2 – Þrívídd

Teikning 2 – Þrívídd

9. febrúar 2022
Kl. 19-22
4 kennslustundir (4x40mín)
6.000 krónur

Þrívídd og fjarlægðir. Kennt að teikna í þrívídd með 2 hvarfpunktum. Einfalt hús teiknað og skyggt.

Innifalið er allt efni og áhöld. Hámarksfjöldi þátttakenda 6.

Þetta námskeið er fyrir byrjendur í þrívíddarteiknun og krefst ekki forkunnáttu en það er kostur að kunna að skyggja eða hafa farið á Teikning 1. Þetta er annað af þremur eins skiptis teikninámskeiðum Sýslsins. Hægt er að fara á eitt eða fleiri námskeið í þessari námskeiðsröð. Námskeiðin eru góður grunnur fyrir frekari teiknun og málun. 

Kennari: Ásta Þórisdóttir

Ásta er með listmenntun í grafík frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og meistaragráður í listkennslu og hönnun frá Listaháskóla Íslands. Ásta er með langa reynslu af kennslu barna og fullorðinna. 

Þátttakendur fá staðfestingarskjal fyrir þátttöku og skráðar kennslustundir og geta sótt um tómstundastyrki til stéttarfélaga sinna. Námskeið hjá Sýslinu verkstöð eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.

Dagsetning

09 02 2022
Expired!

Tími

19:00 - 22:00

Verð

6.000 kr

Meiri upplýsingar

Skráning →

Staðsetning

Sýslið verkstöð
Hafnarbraut 2
Category
Skráning →