Home Viðburðir Teikning 3 – Landslag

Teikning 3 – Landslag

16. febrúar 2022
Kl. 19-22
4 kennslustundir (4x40mín)
6.000 krónur

Landslagsteikning. Hér verður unnið með fjarlægðir og fókuspunkta, ljós og skugga. Teiknuð verður ein landslagsmynd eftir ljósmynd þar sem þessi atriði verða æfð. Þetta námskeið er fyrir byrjendur og krefst ekki forkunnáttu, en það er kostur að kunna skil á þrívíddarteikningu og skyggingu. Þetta er þriðja og síðasta námskeiðið í eins skiptis teikninámskeiðum Sýslsins. Hægt er að fara á eitt eða fleiri námskeið í þessari námskeiðsröð. Námskeiðin eru góður grunnur fyrir frekari teiknun og málun. 

 Innifalið er allt efni og áhöld. Hámarksfjöldi er 6.

Kennari: Ásta Þórisdóttir

Ásta er með listmenntun í grafík frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og meistaragráður í listkennslu og hönnun frá Listaháskóla Íslands. Ásta er með langa reynslu af kennslu barna og fullorðinna. 

Þátttakendur fá staðfestingarskjal fyrir þátttöku og skráðar kennslustundir og geta sótt um tómstundastyrki til stéttarfélaga sinna. Námskeið hjá Sýslinu verkstöð eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga.

Dagsetning

16 02 2022
Expired!

Tími

19:00 - 22:00

Verð

6.000 kr

Meiri upplýsingar

Skráning →

Staðsetning

Sýslið verkstöð
Hafnarbraut 2
Category
Skráning →